Heim

AIESEC í hnotuskurn

AIESEC eru stærstu alþjóðlegu stúdentareknu samtök í heiminum. Samtökin eru vettvangur leiðtogaþjálfunar sem veita ungu menntafólki tækifæri til að öðlast haldbæra reynslu á sínu sviði samhliða háskólanámi sem mun nýtast þeim bæði almennt og einnig þegar komið er út í atvinnulífið.

AIESEC býður upp á rúmlega 9.000 leiðtogastöður um allan heim og heldur fleiri en 470 ráðstefnur ár hvert fyrir meðlimi AIESEC. Meðlimir AIESEC eru núna yfir 45.000 í yfir 1700 háskólum í fleiri en 107 löndum. AIESEC hefur frá upphafi verið með starfaskiptaverkefni í gangi fyrir stúdenta og nýútskrifaða, sem gefur þeim tækifæri á að búa í öðru landi og öðlast starfsreynslu á alþjóðlegum grundvelli.

Á Íslandi eru tækifæri fyrir mikinn vöxt og metnaðarfullir og kraftmiklir einstaklingar eru ávallt velkomnir í samtökin. Þar geta þeir stækkað tengslanet sitt með því einu að gerast meðlimur í AIESEC, þótt ótrúlegt sé, er maður í raun og veru komin með 45.000 nýja vini á einum degi.

Starfsemi AIESEC á Íslandi fer að mestu fram á höfuðborgarsvæðinu þar sem margvíslegir atburðir eru skipulagðir yfir árið, einnig er hægt að sækja um ýmsar ábyrgðarstöður en þar á meðal eru stjórnir í Háskóla Íslands og Háskóla Reykjavíkur, landstjórn AIESEC, stjórn Framadaganefndar sem vinnur að Framadögum ár hvert ásamt ýmsum öðrum embættum.

Meðlimir AIESEC fá tækifæri til að sækja ráðstefnur erlendis og kynnast þar með áhugaverðu fólki með ólík áhugamál og skoðanir sem eiga það þó sameiginlegt að hafa áhuga á heimsmálum, stjórnun og leiðtogastarfi. AIESEC leitast eftir því að draga það besta fram hjá einstaklingum, fyrirtækjum og samfélaginu í heild.

Evrópa unga fólksinsJunior Chamber InternationalPrentsmiðjan OddiTurborg