Heim

Starfsþjálfun erlendis

Starfaskiptaverkefnið sem hefur verið í gangi hjá AIESEC frá upphafi gefur stúdentum og brautskráðum stúdentum tækifæri á að vinna erlendis í minnsta kosti 6 vikur og í allt að 78 vikur eða eitt og hálft ár. Á síðastliðnu ári tóku fleiri en 8.500 manns þátt í starfaskiptaverkefninu og tókust á við það krefjandi verkefni að búa og vinna í framandi landi. Störfin sem AIESEC hefur upp á að bjóða eru mjög fjölbreytt og framboðið töluvert en þeim hefur verið skipt í 4 svið til þess að einfalda leit og hjálpa fólki við að velja það sem tengist þeirra eigin námi. Sviðin eru stjórnun, samfélagsaðstoð, tæknistörf og kennsla.

Til þess að komast í starfsþjálfun erlendis í gegnum AIESEC þá greiðirðu einungis 40.000 krónur í skráningargjald, sama hversu lengi þú ert og hvert þú ferð. Störfin eru launuð eða þér séð fyrir húsnæði og mat á meðan þú ert úti.

Athugið að það er aldurstakmark, umsækjendur þurfa að vera 30 eða yngri m.v. upphafsdag vinnu. Einnig þá er miðað við að það séu ekki liðin meira en 2 ár frá brautskráningu úr háskóla.

Ferlið

Umsókn og val

Eftir að þú hefur sent okkur umsókn tökum við viðtal við þig til þess að fá betri vitneskju um eftir hverju þú ert að leita. Þá gefst þér einnig gott tækifæri til þess að fá svör við öllum þínum spurningum hvað varðar ferlið.

Undirbúningur

Við hjá AIESEC hjálpum þér í gegnum allt ferlið og erum alltaf til staðar þegar þig vantar aðstoð. Við veitum einnig þjálfun og undirbúning fyrir að búa í öðru landi.

Að finna fyrirtæki og vinnu

Þú færð aðgang að og þjálfun í að leita í gagnagrunni AIESEC sem hefur að geyma öll laus störf hverju sinni. Því sveigjanlegri sem þú ert, því auðveldara reynist að finna starf.

Þegar út er komið

AIESEC meðlimir í því landi sem þú dvelur eru þér til halds og trausts og aðstoða þig við að koma þér fyrir og veita þér tækifæri til þess að taka þátt í menningarlegu og félagslegu starfi. Þeir finna handa þér stað til að búa á, sækja þig þegar þú kemur, sýna þér hvar þú átt að kaupa í matinn, hvernig þú tekur almenningssamgöngur og fylgja þér í vinnuna fyrsta daginn ef við á. Þér verður úthlutað tengilið bæði hér heima og í landinu þar sem þú dvelur sem þú getur haft samband við þurfir þú á aðstoð að halda.

Heim aftur

Þegar heim er komið aðstoðum við þig við að aðlagast aftur íslensku umhverfi eftir þörfum. Við verðum einnig til staðar allan tímann á meðan þú ert úti og verðum reglulega í samskiptum við þig. Ef eitthvað bjátar á er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur eða tengilið þinn.

Hvað er í boði?

Smelltu hér til þess að senda inn umsókn um starfsþjálfun erlendis!

Evrópa unga fólksinsJunior Chamber InternationalPrentsmiðjan OddiTurborg