Heim

Not Icelandic? Click here if you would like to apply for membership and the conference.

Ráðstefnur hérlendis

DRIVE

Önnur ráðstefna vetrarins verður haldin helgina 5. − 7. mars 2010. Seinustu ár hefur DRIVE verið haldin í byrjun árs fyrir hvoru tveggja nýja og eldri meðlimi. Í fyrra var ráðstefnan haldin á Laugarvatni en í ár var Þjórsárver fyrir valinu.

Mynd af Þjórsárveri

Dagskrá

Búið er að skipuleggja dagskrána og á meðal fyrirlesara eru Guðjón Bergmann sem mun fræða okkur um life management og Tryggvi Freyr Elínarson frá Góðu Vali og félagi í JCI sem mun fræða okkur um personal branding. Hægt er að sækja dagskrá ráðstefnunnar á ensku og á Excel formi hér.

Í ár verður kvikmyndaþema á DRIVE þ.a. á föstudagskvöldinu eru þátttakendur hvattir til þess að klæðast sem teiknimyndapersóna eða einhver persóna úr söngleik og á laugardagskvöldinu sem einhver persóna úr hrollvekju eða 'thriller'.

Til þess að getað komist á ráðstefnuna þá þarftu að vera meðlimur AIESEC og er hún sérstaklega ætluð nýliðum til þess að kynnast samtökunum betur.

Fyrirkomulag

Mæting er upp í Þjórsárver í síðasta lagi kl. 17:30 föstudaginn 5. mars og verður ráðstefnunni lokið kl. 15:00 sunnudaginn 7. mars. Þeim sem annað hvort vantar far eða eru með laust sæti í bílnum sínum og vilja deila bensínkostnaðinum geta sent Guðmundi Bjarna Benediktssyni tölvupóst á netfangið gudmundur.benediktsson@aiesec.is.

Kostnaður er aðeins 6.000 kr. fyrir alla helgina og innifalið í því er gisting og góður matur. Hægt er að koma með pening í lausu eða millifæra á okkur áður en lagt er af stað á reikninginn okkar: 0137-26-099111, kt: 551183-0339 og koma þá með kvittun.

Þeir sem eru ekki skráðir meðlimir í samtökunum núna geta gert það með því að smella hér. Uppfært! Skráningarfrestur rennur út kl. 20:00 miðvikudaginn 3. mars fyrir þá sem ætla að koma á ráðstefnuna.

Vel valdar myndir frá DRIVE 2009

Mynd af hluta hópsins á DRIVE 2009

Mynd af hluta hópsins á DRIVE 2009

iCon@

Fyrsta ráðstefna vetrarins var haldin helgina 18. - 20. september 2009.

Þar fengu þátttakendur tækifæri til þess að...

Hún var bæði fyrir nýja og eldri meðlimi þ.a. fyrirlestrar voru ýmist fyrir allan hópinn eða í sitt hvoru lagi með ólíkum áherslun. Áhersla fyrirlestranna fyrir nýja meðlimi var auðvitað að kynnast AIESEC og skyggnast inn í framtíðina til að sjá hverju búast má við í náinni framtíð. Áherslan fyrir núverandi meðlimi var hnitmiðuð að þróa hæfileika okkar í leiðtogahæfni o.fl.

Vel valdar myndir frá iCon@ 2009

Stund milli stríða

Stund milli stríða - Rúnar Ólafsson, Kjartan Hansson og Aron Kjartansson slappa af á milli fyrirlestra. Þess má geta að Kjartan er liðsstjóri markaðsteymisins og Aron tók þá ákvörðun að sækja um stjórn Framadaga árið 2010 eftir ráðstefnuna og fékk þar stöðu fyrirtækjastjóra.

Mikið hugsað í fyrsta hópverkefninu þessa helgina. Guðmundur Bjarni Benediktsson (ljósblá skyrta) er einmitt hluti af OC of DRIVE 2010 eða Organizing Committee eins og það kallast á opinbera máli AIESEC.

Evrópa unga fólksinsJunior Chamber InternationalPrentsmiðjan OddiTurborg