Heim

Algengar spurningar - FAQ

Ég byrja í háskóla næsta haust, má ég sækja um að taka þátt í starfaskiptaverkefninu núna?

Nei því miður, maður þarf að vera að lágmarki byrjaður í háskóla til þess að eiga möguleika á að sækja um. Síðan fer það eftir hverju fyrirtæki og hverri hjálparstofnun fyrir sig hversu hvort þau vilja að kröfurnar séu meiri. M.ö.o. það eru alltaf þessar lágmarkskröfur og síðan geta fyrirtækin eða stofnanirnar einnig sett t.d. skilyrði um eðli námsins eða hversu miklu væntanlegur starfsmaður þarf að hafa lokið af náminu sínu. Fyrir þróunarstarf eru kröfurnar oftast minni, þ.e.a.s. það er nóg að hafa klárað 1-2 ár af náminu. Fyrirtæki og þá sérstaklega alþjóðlegir samstarfsaðilar AIESEC gera oftast þá kröfu að umsækjendur hafi lokið BS/BA gráðu. Hér geturðu skoðað lista yfir alþjóðlega samstarfsaðila AIESEC á vefsíðu AIESEC International. Þar fyrir utan er ógrynni af smærri fyrirtækjum og stofnunum í hverju landi fyrir sig sem taka þátt í starfaskiptaverkefninu.

Hvað er innifalið í þessu gjaldi sem maður þarf að borga til þess að getað farið í starfsþjálfun erlendis?

Gjaldið (Exchange Participant Fee, 40.000 kr.) er fyrir aðganginn að gagnagrunninum sem hefur að geyma upplýsingar um öll störfin sem eru í boði hverju sinni. Þar að auki færðu síðan úthlutaðri manneskju sem kennir þér að finna það starf sem þú ert að leita að og veitir þér stuðning. Leitin sjálf að starfi er síðan undir þér komin þar sem þú veist best hverju þú ert að leita að. Einnig fara allir á ráðstefnu (Outgoing Preparation Seminar) sem er til þess að undirbúa alla sem eru á leiðinni út m.a. til þess að takast á við menningarsjokkið. Þegar út er komið þá taka meðlimir AIESEC í því landi sem þú ferð til á móti þér og eru þér til halds og stuðnings.

Hvernig er fyrirkomulagið á ferðakostnaðinum?

Almenna reglan er sú að þátttakendur borgar sjálfir fyrir flugfarið sitt. Það er aðeins í undantekningartilfellum sem flugfarið er greitt og þá er um að ræða störf í boði hjá Google og öðrum fyrirtækjum að svipaðri stærðargráðu. Störfin þar eru mjög eftirsótt (þúsundir umsókna), kröfurnar miklar og því stjarnfræðilegar líkur á að landa því starfi. Þau störf sem flestir Íslendingar sækjast í eru þróunarstörf (það er mikið af þess háttar störfum í boði) og þannig stofnanir geta auðvitað ekki greitt flugfar fyrir Íslending til þess að koma til Kenía til þess að kenna í nokkrar vikur.

Evrópa unga fólksinsJunior Chamber InternationalPrentsmiðjan OddiTurborg