Heim

Bólusetningar og heilsa þegar ferðast er

Eftirfarandi upplýsingar fengust frá Ferðavernd og hvetjum við alla sem hyggja á að fara erlendis, á aðra staði en til vesturlanda, að hafa samband við sinn heimilislækni eða Ferðavernd. Hægt er að fá nánari upplýsingar á vefsíðu Ferðaverndar.

Hverju skal huga að áður en lagt er af stað?

Hvernig forðast maður veikindi?

Fáðu nauðsynlegar bólusetningar eða viðeigandi lyf

Sjúkdómar sem þú gætir þurft bólusetningar við eru lömunarveiki, stífkrampi, barnaveiki, lifrarbólga A, lifrarbólga B, taugaveiki, mýgulusótt, japönsk heilabólga, heilahimnubólga, hundaæði, kólera, malaria o.fl.

Hreint drykkjarvatn

Innsiglaðar flöskur eða soðið í 3-5 mínútur.

Matur

Ekki borða eftirfarandi mat: hráan mat (þetta á líka við um grænmeti), kaldan mat, kaldar sósur, klaka í drykki, ís úr vél eða af götunni. Nýsoðinn matur er öruggastur. Skrældu sjálf/ur ávexti. Ekki borða ávexti með hýðinu.

Verðu þig gegn skortdýrabitum

Hyldu húðina með klæðum í ljósakiptunum og eftir myrkur. Nota úða eða smyrsl á óvarða húð ss. hendur og andlit. Ef úði þá best að úða í lófa og nudda svo á andlit til að forðast að fari í augu. Úði eða krem með DEET 30-50% veitir bestu vörnina. Taktu malaríutöflur þegar við á.

Varastu sólina

Húðin er viðkvæmari fyrir sólinni því ljósari sem hún er. Vertu aðeins í stuttan tíma í einu, allavega fyrst um sinn og notaðu ávallt sólarvörn.

Vökvatap

Í miklum hita er hætta á að þú tapir bæði vökva og salti út með svita. Drekktu vel og auktu saltneyslu til að koma í veg fyrir vökvatap.

Evrópa unga fólksinsJunior Chamber InternationalPrentsmiðjan OddiTurborg